Konnichiwa!
Gestirnir okkar þeir Tommi og Ylfa eru búnir að vera hér í tæpar 2 vikur og er mikið búið að bralla á þeim tíma.
Hún Jana átti 25 ára afmæli þann 19. maí og þá var auðvitað ekki annað hægt en að fagna þeim tímamótum ærlega. Því var blásið til (óvæntrar) veislu í garðinum hjá húsinu okkar í sól og blíðu og svo farið út að borða um kvöldið (viðurkennum fúslega að japanskur veitingastaður varð ekki fyrir valinu heldur ítalskur staður með ekta ítalskar eldbakaðar pítsur...jú jú...það má nú allt á afmælisdaginn! )
Síðustu helgi var svo flogið til Tokyo þar sem við þræddum borgina á þremur dögum og hittum Tokyo-Íslendinga.
Ferðalögin eru langt í frá búin því við ætlum að nýta síðustu gestahelgina í ferð til Kyoto og Hiroshima.
Þegar við kveðjum gestina okkar tökum við jafnframt á móti regntímabilinu, miklum hita og raka og törn í skólanum...stuð!! En við kvörtum ekki...við förum þá bara oft í karaoke í staðinn fyrir að vera úti...er það ekki ágætis lausn?
Við kveðjum í bili,




