föstudagur, 26. júní 2009

Við verðum nú að segja ykkur frá meistaratöktum okkar í eldhúsinu. Við slógum í gegn síðasta miðvikudag þegar stelpurnar á hæðinni borðuðu saman. Hver og ein eldaði einn rétt frá sínu heimalandi. Síðast þegar við elduðum saman töfruðu hinar stelpurnar fram dýrindis rétti frá Kína og Suður-Kóreu. Og hvað buðum við upp á? Pasta með kjúklingi og grænmeti. Í þetta skipti ákváðum við því að taka okkur á og elda eitthvað íslenskt. Og hvað haldiði að við höfum eldað? Hrísgrjónagraut! Ekki nóg með að þeim hafi fundist hann mjög góður heldur vildu þær ólmar fá uppskriftina og spurðu hvort við gætum sýnt þeim hvernig ætti að búa til hrísgrjónagraut. Við urðum nú frekar vandræðalegar þegar þær spurðu um hvaða hráefni þyrfti í grautinn. ,,Just rice and milk....uuu...then you just stir for a long time".

Nú má búast við miklum vinsældum hrísgrjónagrauts með mjólk og kanilsykri í Asíu þökk sé okkur.

Annars erum við hættar að koma með fréttir af rigningartímabilinu því við erum satt að segja ekki einu sinni vissar um að það sé í gangi. Það ætti að standa yfir núna...en ef svo er þá er þetta ansi aumingjalegt rigningatímabil.

Skólinn fer alveg að klárast og styttist því í lokaprófin. En áður en við förum að leggjast yfir bækurnar ætlum við að fara í strandar-afmælis-bekkjarpartý, magadans hjá nágrannanum, karaokee með stelpunum á hæðinni, hlaupa hálfmaraþon og fleira skemmtilegt.



Fyrsti bitinn - spennan í hámarki


Janhvít

mánudagur, 22. júní 2009


Við skruppum út í 10 mínútur...




....og á sama tíma byrjaði rigningartímabilið með pompi og prakt!





....við gleymum samt auðvitað ekki gleðinni....ó nei nei!


Janhvít

föstudagur, 19. júní 2009

Flugnabit og fleira hressandi



Við skelltum okkur á æfingu síðastliðinn fimmtudag í góðu og heitu veðri. Mikill sviti (förum ekki nánar út í það hérna). Fyrir utan að vera helmassaðar þá erum við helbitnar. Fengum yfir 30 bit samtals. Ekki grín. Moskítóflugurnar héldu partý á okkar kostnað!! 

Við viljum ekki sjá þessi helvíti

Lífið er gott í Japan. Sólin heldur áfram að gleðja okkur. Við vöknum hissa á hverjum degi því við eigum auðvitað von á dökkum skýjum og rigningu. Gaman að'essu.

Hlaupin ganga vel. Við komum sjálfum okkur sífellt á óvart. Og það er sko ekki leiðinlegt. 

Minnum á heimilisfangið okkar hérna til hægri. Það er sko ekki bannað að senda kort eða pakka. 

Þar hafiði það.
Sv(J)ana







mánudagur, 15. júní 2009

Það má segja að lífið gangi sinn vanagang hér í Fukuoka. Í gær tókum við fyrsta prófið okkar í skólanum sem var 24 klst heimapróf. Það reyndist frekar erfitt að senda það 12 klst síðar. ,,Bíddu..ég hef 12 klst í viðbót...ætti ég að bæta einhverju við eða breyta?" Það létti þó yfir manni þegar maður hafði sig loksins í að ýta á "senda" því hver veit hvernig útkoman hefði orðið ef við hefðum nýtt allar 24 klst og verið að vinna í prófinu í nótt.


Regntímabilið er hálfnað og það undarlegasta við það er að það hefur aðeins rignt einn dag. Við erum ávallt í viðbragðsstöðu vopnaðar regnhlífum og regnstökkum og það kemur okkur því sífellt á óvart þegar við vöknum við sól og blíðu. Þetta regntímabil er því okkur að skapi! Þess má geta að enginn og þá meinum við enginn er í regnstökkum nema við tvær. Við þykjum víst frekar lummó. Og við sem ætluðum að kaupa okkur gúmmístígvél í þokkabót!


Annars þá höfum við ákveðið að taka þetta hálfmaraþon með trompi og því komnar með hlaupaprógram frá Helgu Þóru Jönufrænku og hlaupadrottningu. Markmiðið er að hlaupa eins og vindurinn (hleypur hann ekki annars rosa hratt?). Þeir sem vilja koma og hvetja okkur í hlaupinu, vera við vatnsstöðvarnar o.s.frv. vinsamlegast hafið samband. Ferðakostnaður ekki innifalinn.

Þangað til næst,
Janhvít

föstudagur, 12. júní 2009

43 dagar

í

Hálfmaraþon Janhvítar

!!!!




mánudagur, 1. júní 2009

Lífið er yndislegt ...

... ég geri það sem ég vil / ... sjáðu, það er rétt að byrja hér.

Þá er annar gestanna, Tommi, farinn til Íslands. Jönu til mikils ama. Ylfa er enn í Japan og er að nýta síðustu dagana til hins ýtrasta.

Þegar við létum síðast í okkur heyra höfðum við þrætt götur Tokyo með frábærum gestum og hitt skemmtilega Tokyoíslendinga (við söknuðum þó Völu, Jóhönnu og Finns pínu).

Í framhaldi af frábærri Tokyoferð tóku frekari ferðalög við. Systurnar skelltu sér í onsen í Aso og í kastalaskoðun í Kumamoto. Jana og Tommi fóru til Hiroshima að skoða bom(b)usafn og til Miyjajima að skoða dádýr og í fjallgöngu. Svo fóru allir saman með shinkansen (úúú) til Kyoto að skoða hof og skríni. Jana og Tommi héldu svo heim á leið en systurnar til Hiroshima og Miyjajima.

Dádýr og Jana


Fallegt útsýni frá Mt. Misen á eyjunni Miyjajima


Við fórum í svona (liggaliggalá)


Systur að bíða eftir shinkansen


Tommi að bíða með vinum sínum

Það er sko ekki búið að vera leiðinlegt hjá okkur og mikið hefur verið brallað. En Ylfa á enn eftir að smakka ramen og við ætlum að kippa því í liðinn hið fyrsta.

Bless í bili,
Janhvít