fimmtudagur, 30. júlí 2009

Við erum búnar gott fólk!!

Búnar með hálfmaraþon OG búnar með prófin. Jibbí!!

Nú taka rólegheit og afslöppun við. Það er reyndar margt sem við höfum einsett okkur að gera áður en við leggjum land undir fót. To-do listinn er frekar langur. Hér eru nokkur dæmi:

- Fara í bláberjatínslu (namm).
- Fara til Suður-Kóreu (djamm).
- Fá sólina til Fukuoka og fara í sólbað (je).
- Fara í fjallgöngu.
- Fara í yukata partý
- Borða góðan mat (namm, aftur).
- Safna tani, orku og spenningi fyrir heimför.
- Versla í Tókýó, Suður-Kóreu og jafnvel í Danmörku.
- Vera svalar og sætar.

Margt sem við þurfum að gera og við ætlum að byrja á því að bóka ferð til Suður-Kóreu.

Sayonara bitches,
Töffara-Janhvít


laugardagur, 25. júlí 2009

Jibbí!!


Við vorum að klára Hálf-Maraþonið okkar og gekk það glimrandi vel!


Okkur leist nú síður en svo á blikuna í gær þegar það rigndi stanslaust allan daginn og við erum ekki að tala um dæmigerðan rigningardag á Íslandi heldur var rigningin það mikil að við hættum okkur ekki úr húsi. Í ofanálag voru þrumur og eldingar og því vorum við farnar að hafa áhyggjur af hlaupaveðrinu enda hlaupið morguninn eftir.

Fjölskyldur okkar fengu auðvitað vælupósta og við vorkenndum okkur afar mikið.

Við ákváðum þó að vakna kl 7 í morgun og sjá hvernig veðrið yrði Enn var rigningin mikil og við því tvístígandi hvað við ættum að gera en ákváðum bara að kýla á þetta og hlaupa. Enginn er verri þótt hann vökni.

Sem betur fer stytti upp þegar við komum út og þá var bara að gjöra svo vel að byrja.

Þrátt fyrir 30° stiga hita og raka þá náðum við að halda góðum hraða og náðum því settu tímamarkmiði. Auðvitað voru kaflar þar sem við hugsuðum ,,ojj viðbjóðslegi hiti" ,,ohh við eigum svo mikið eftir" o.s.frv. en þegar leið á seinni hlutann tók keppnisskapið yfir og dreif okkur áfram. Gekk þetta því eins og í sögu þrátt fyrir að gömul fiðlu-axla-meiðsli Svanhvítar hafi komið upp í lokin.

Við erum nú komnar heim með þreyttar lappir en sáttar og glaðar með árangurinn.

Í augum sumra er þetta kannski lítið mál en fyrir okkur var þetta mikill sigur þar sem við höfðum lítið verið að hlaupa heima á Íslandi og þá í mesta lagi farið 10 km á góðum degi. Það er víst ekki hægt að setja samansem merki milli þess að vera duglegur að hamast í ræktinni og vera með gott hlaupaþol. Því komumst við að í byrjun..

En þetta gátum við enda búnar að fara samviskusamlega eftir hlaupaplaninu okkar.

Nú er bara að rumpa næstu prófum af og svo tekur fríið langþráða við eftir 5 daga!

Þar til næst,

Hlaupa-Janhvít


föstudagur, 24. júlí 2009

Og við teljum niður...

1 dagur í Hálf-Maraþon Janhvítar

6 dagar í próflok

4 vikur í heimkomu

þriðjudagur, 21. júlí 2009

Við óskum eftir kokki til að elda fyrir okkur í prófunum.



Viðkomandi má ekki útbúa eggjahræru eða blanda saman kjúklingi, brokkolí og sætum kartöflum.



Ferðakostnaður og gisting ekki innifalin en við lofum afbragðsgóðum félagsskap.



Greitt eftir samkomulagi.


Prófa-Janhvít




föstudagur, 17. júlí 2009

Góðan daginn!


Engar áhyggjur. Það er miklu betra hljóðið í okkur núna þannig að þið þurfið ekki að hlusta á neitt væl í okkur í þetta sinn. Nokkrar ástæður fyrir dapri færslu síðast: Nr. 1) Það var sunnudagur. Það eitt er nóg. Nr. 2) Þar var heil skólavika framundan og þurftum við að flytja fyrirlestur hjá Hvíslaranum Nr. 3) 17 km hlaup beið okkar sama dag Nr. 4) Tölvan mín (Svanhvítar) hafði "krassað" kvöldið áður og var óvíst hvort hægt væri að bjarga henni og öllum gögnunum.

Nú erum við sprækar sem lækur! Sólin skín, það er NAMMIDAGUR, við erum búnar að fá
5 pakka á síðustu þremur dögum sem þýðir það að við eigum NÓG af íslensku nammi fyrir próflesturinn og skemmtileg bréf að lesa þegar við höfum fengið nóg af prófabókunum. Mikið eigum við góða að!


Nú eru bara 7 dagar í hálfmaraþonið og 12 dagar í próflok.

Eftir prófin ætlum við að njóta lífsins, slappa af, ferðast um eyjuna og jafnvel út fyrir landsteinana, versla aðeins í Tokyo og margt fleira skemmtilegt.

Annars þá skelltum við okkur á hina árlegu Yamakasa (rassa) hátíð síðasta miðvikudag og var það vel þess virði að vakna kl 3 um nóttina. Mikið rosalega var gaman!





En annars þá ætlum við að skella okkur í síðasta tíma annarinnar og kveðjum því í bili.

sunnudagur, 12. júlí 2009

Bla


Titill þessarar færslu gefur til kynna hvernig lífið í Japan er þessa dagana.

Það er svona frekar "...bla..."


Ástæða: Prófin eru á næsta leyti. Þá verður lífið alltaf frekar bla.

Þið sem vorkennið okkur; réttið upp hönd!

Þið sem réttuð upp hönd verðið að senda okkur bréf eða pakka.

Yfir og út,
Janhvít

P.s. Ylfa er sko að standa sig í pakkasendingum. Svo er hún líka sæt. Go Ylfa!

P.p.s. Við erum ekkert að deyja neitt, erum enn að massa hlaupin og brosum út að eyrum oft á dag.

sunnudagur, 5. júlí 2009

Sancho Pancha og þrírétta hádegisverður

Konnichiwa.

Ýmislegt hefur drifið á daga okkar síðan síðast; Rigning, afmælisboð, sól, hlaup, salsa, fáránlega góður hádegismatur, hjólatúr í mestu rigningu í heimi, brotinn bekkur, hlaup, dans, sviti og almennt stuð.

Byrjum á veðurfréttum, það þýðir ekki að breyta út af vananum. Það skiptast sko heldur betur á skin og skúrir hérna í Fukuoka. Rigning, SÓL, rigning, SÓL, hellidemba, SÓl o.s.frv. Við ákváðum að hjóla í skólann í síðustu viku því það var ekkert sérstaklega mikil rigning. Smá úði. Þegar við vorum komnar hálfa leið kom þessi rosalega demba. Við vorum RENNANDI blautar og skulfum eins og hríslur inni í loftkældri kennslustofunni. Íslenskir víkingar. Svo var svipuð stemning á heimleiðinni, úff.

Við skelltum okkur í afmæli hjá Tijo og Oleg á föstudaginn. Sem var að sjálfsögðu stuð. Ótrúlega góður matur frá ansi mörgum heimshornum. Aðallega Asíu og Austur-Evrópu þó. Ekki frá Norður-Evrópu því við létum það gott heita að koma með drykki.... Ehemm... Hefðum kannski átt að skella í hrísgrjónagraut.

Hlaupin ganga eins og í sögu. Við hlaupum eins og vindurinn (jafnvel aðeins hraðar) fjórum sinnum í viku og ætlum að massa þetta hálfmaraþon. Styttist í það. Bara 19 dagar. Hólímólí.

Á laugardaginn var haldið á Sancho Pancha ásamt Margréti, Gunnari og Patriccio. Ógeðslega skemmtilegt!! Á laugardagskvöldum er nefninlega latíndansakvöld. Janhvít stóð sig fáránlega vel, var boðið upp hægri vinstri. Kannski pínu stífar en misstum aldrei kúlið.

Jönu tókst að brjóta bekk í strætisvagnabiðskýli, fannst það ógeðslega fyndið

Þessi á ítalska staðnum

Þessi á ítalska staðnum ("...æi Jana...")

Svanhvít í sveiflu (ógeðslega happí)

Jana í sveiflu með perranum (ógeðslega skerí)

Þessi dönsuðu bara hvort við annað (ógeðslega kjút)

Ógeðslega ánægðar með kvöldið

Á sunnudaginn var okkur boðið í hádegismat til Connie og Joel (þau eru bandarísk hjón og Connie er með okkur í bekk). Við höfum aldrei séð annað eins. Fengum þriggja rétta hádegisverð, takk fyrir. Salat í forrétt, mjög ljúffengt pasta í aðalrétt og ís í eftirrétt (-mat). Vavaviva. Svo fórum við út að hlaupa með stein í maganum, úff.

Næst á dagskrá er SKÓLI SKÓLI SKÓLI. Hljómar dásamlega. En þetta verður búið áður en við vitum af. Þá tekur við 18 daga tjill. Ahhh...

Sayonara,
Janhvít