laugardagur, 25. júlí 2009

Jibbí!!


Við vorum að klára Hálf-Maraþonið okkar og gekk það glimrandi vel!


Okkur leist nú síður en svo á blikuna í gær þegar það rigndi stanslaust allan daginn og við erum ekki að tala um dæmigerðan rigningardag á Íslandi heldur var rigningin það mikil að við hættum okkur ekki úr húsi. Í ofanálag voru þrumur og eldingar og því vorum við farnar að hafa áhyggjur af hlaupaveðrinu enda hlaupið morguninn eftir.

Fjölskyldur okkar fengu auðvitað vælupósta og við vorkenndum okkur afar mikið.

Við ákváðum þó að vakna kl 7 í morgun og sjá hvernig veðrið yrði Enn var rigningin mikil og við því tvístígandi hvað við ættum að gera en ákváðum bara að kýla á þetta og hlaupa. Enginn er verri þótt hann vökni.

Sem betur fer stytti upp þegar við komum út og þá var bara að gjöra svo vel að byrja.

Þrátt fyrir 30° stiga hita og raka þá náðum við að halda góðum hraða og náðum því settu tímamarkmiði. Auðvitað voru kaflar þar sem við hugsuðum ,,ojj viðbjóðslegi hiti" ,,ohh við eigum svo mikið eftir" o.s.frv. en þegar leið á seinni hlutann tók keppnisskapið yfir og dreif okkur áfram. Gekk þetta því eins og í sögu þrátt fyrir að gömul fiðlu-axla-meiðsli Svanhvítar hafi komið upp í lokin.

Við erum nú komnar heim með þreyttar lappir en sáttar og glaðar með árangurinn.

Í augum sumra er þetta kannski lítið mál en fyrir okkur var þetta mikill sigur þar sem við höfðum lítið verið að hlaupa heima á Íslandi og þá í mesta lagi farið 10 km á góðum degi. Það er víst ekki hægt að setja samansem merki milli þess að vera duglegur að hamast í ræktinni og vera með gott hlaupaþol. Því komumst við að í byrjun..

En þetta gátum við enda búnar að fara samviskusamlega eftir hlaupaplaninu okkar.

Nú er bara að rumpa næstu prófum af og svo tekur fríið langþráða við eftir 5 daga!

Þar til næst,

Hlaupa-Janhvít


4 ummæli:

Jolastrympa sagði...

TIL HAAAAAMINGJU!!! VÍÍÍÍÍ. Það er sko alltaf gaman að ná settum markmiðum og það veit sérhver hlaupari að hvert hlaupamarkmið krefst blóðs (ekki alltaf), svita (aaallltaf) og tára (stundum). =o) Þið stóðuð ykkur frábærlega. Nú er bara að halda áfram! Litli íslenski strumpahlaupaþjálfarinn er ákaflega stoltur af afreki ykkar.

Heiðbjört sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA!!! aldeilis dugnaður hjá ykkur og það í miðjum prófum!!! Hafið það gott í fríinu og hlakka til að sjá ykkur á Fróni í haust :D

Knúúús Golly

Unknown sagði...

Til hamingju með þetta, stórglæsilegt!

En hvað næst? Þið verðið að setja ykkur nýtt markmið, klárlega.
Heilt maraþon í október?

Nafnlaus sagði...

Jí hvað ég er stolt af frænku minni og nöfnu...eheheheh.

Mikið eruð þið nú duglegar!!!

Ég hlakka rosa mikið til að knúsa þig í tætlur litla frænka.

Síjú darlingur,
Svanhvít frænka.