Við erum búnar gott fólk!!
Búnar með hálfmaraþon OG búnar með prófin. Jibbí!!
Nú taka rólegheit og afslöppun við. Það er reyndar margt sem við höfum einsett okkur að gera áður en við leggjum land undir fót. To-do listinn er frekar langur. Hér eru nokkur dæmi:
- Fara í bláberjatínslu (namm).
- Fara til Suður-Kóreu (djamm).
- Fá sólina til Fukuoka og fara í sólbað (je).
- Fara í fjallgöngu.
- Fara í yukata partý
- Borða góðan mat (namm, aftur).
- Safna tani, orku og spenningi fyrir heimför.
- Versla í Tókýó, Suður-Kóreu og jafnvel í Danmörku.
- Vera svalar og sætar.
Margt sem við þurfum að gera og við ætlum að byrja á því að bóka ferð til Suður-Kóreu.
Sayonara bitches,
Töffara-Janhvít
2 ummæli:
omæ - ómæ - ómæ.. !!! má ég ekki bara koma með !?!? plííííís!
Kv. Sonjus sem hlakkar til að fá ykkur heim !
Have fun in the sun!
Þið þurfið að fara í allsherjar brúnkusöfnun þar sem allir hér heima eru heltanaðir og þið getið ekki verið litlu Asíulúðarnir.
Þið getið nú þegar tékkað "Vera svalar og sætar" af to-do listanum því það eruð þið alltaf!
Skemmtið ykkur vel í S-Kóreu, hlakka til að sjá blogg um hvernig var.
Kv. Ylfa
Skrifa ummæli