miðvikudagur, 12. ágúst 2009

Ferðasagan hefst á glampandi sól í Fukuoka. Við vorum klæddar eftir því þegar við fórum í ferjuna sem flutti okkur til S-Kóreu. Eftir 3 klst siglingu komum við loks á áfangastað og leist okkur nú ekki á blikuna. Grenjandi rigning!!

Eftir að hafa verið hitamældar þá fengum við, Svínaflensulausu-Íslendingarnir, að fara inn í landið.

Samkvæmt leiðsögn frá hippa-hosteleigandanum, sem fannst allt vera "easy..right?", fórum við í neðanjarðarverslunarmiðstöð þar sem ýmis góð kaup voru gerð.

Mjög sáttar með veikan gjaldmiðil kóreubúa eyddum við slatta af veiku krónunni okkar. Næsu!

Fyrsta kvöldið okkar hittum við kóresku vinkonu okkar, hana Suji, sem fór með okkur á local ekta kóreskan barbeque stað. Kjötið sem við fengum var feitara en beikon. Enough said.

Janhvít og Suji

Girnilegt?

That´s more like it!

Done and done

Stuð...

Morguninn eftir var ferðinni heitið til Seoul þar sem við gistum í tvær nætur. Þar voru einnig gerð ýmis góð kaup og oftar en einu sinni heyrðist kallað á íslensku: ,,Vá hvað þetta er ódýrt!"

Myeong Dong í Seoul

Mmmm...

Hvar er Valli (Svanhvít)?

Einkennismynd

Þar hittum við aðra kóreska vinkonu okkar, Ji yeong, sem fór nú með okkur á talsvert betri stað en beikon staðinn. Eigandi staðarins var voðalega hrifinn af okkur, enda ekki á hverjum degi sem útlendingar ramba inn á staðinn hans. Hann lét okkur fá svuntur (okkur leið reyndar þá eins og 5 ára), ókeypis gos og svo var hann voða duglegur að koma reglulega til okkar og bæta við matinn. Í lok kvöldsins héldum við upp í Seoul Tower, svona til að hafa gert eitthvað annað en að versla.

"Guys, you look so tired" (Ji yeong)

Ji yeong

Útsýnið úr Seoul Tower

Síðasta daginn okkar ákváðum við nú að gera vel við okkur og fara 60 mínútna fótanudd í lok dagsins og við mættum tvíelfdar í búðirnar.

Við létum ekki þar við sitja heldur skelltum okkur í fiska-pedicure. Myndin segir allt sem segja þarf!

Svanhvít á leiðinni í fiskadjammið, pínu skelkuð

Næsu

Sælar eftir nudd, fiska-pedicure og versl

Ferðina enduðum við á mjööög góðum indverskum stað. Við vorum búnar að vera duglegar og prófa kóreskan mat og nú máttum við velja sjálfar. Við borðuðum á okkur gat og vel það fyrir kúk og kanil (...kúk og kanil? ekkert skrítið við það?).

Munurinn á Suður-Kóreu og Japan: Suður-Kórea er mun skítugri en Japan. Kóreubúar eru háværari, með litla þjónustulund og ástúðlegri á almannafæri. Kóresku strákarnir eru óhræddari við að nálgast vestrænu furðulegu stelpurnar. Suður- Kórea er mun ódýrari en Japan og í Kóreu er sko hægt að prútta, Svanhvít stóð sig með sóma og stóð uppi sem prúttsigurvegari ferðarinnar, Jana naut að sjálfsögðu góðs af því. Kóreubúar eru mikið fyrir fake töskur o.s.frv. en Japanir myndu ekki láta sjá sig með annað en ekta. Einnig sá maður þó nokkra betlara í Suður-Kóreu sem sjást hvergi í Japan. Þar sem það er svo erfitt að horfa upp á þessi grey, þá ímynduðum við okkur bara að þetta væru leikarar. Og þvílíkir leikarar!

Prúttdrottningin með prútttöskuna

Japönum finnst mjög spennandi að Suður-Kórea bjóði upp á Krispy Kreme kleinuhringi sem er greinilega, fyrir kleinuhringjaóðu Japanina, kadilakkinn þegar kemur að kleinuhringjum. Á heimleiðinni mátti því sjá ófáa Japani með fullt fangið af ódýrum kóreskum fötum og kassa af kleinuhringjum frá Krispy Kreme. Þessar elskur!

Þessi ferð var mjög vel heppnuð; Við hittum vinkonur okkar. Versluðum til að þyngja töskurnar okkar. Borðuðum (oftast) góðan mat. Vorum ekta túristar.

Einn (og jafnvel tveir) Smoothie King á dag kemur skapinu í lag!


-Janhvít-

4 ummæli:

Unknown sagði...

Very nice!
Felst fiska pedicure í því að láta þessa litlu fiska éta tásudrullu? Greyin.

Hlakka til að fá þig heim eftir aðeins 8 daga!!! :D

Unknown sagði...

Kvíði heimkomu þinni svo mikið að ég ætla að flýja land .. sjáumst 26. ágúst!

Ps. Gott að þið blogguðuð ... about friggin' time!

Jólastrympa sagði...

Víííí, skemmtilegt blogg :) Ekki það að það sé e-n tímann leiðinlegt sko :D Mjög frískandi að lesa þessa ferðasögu =o)

Nafnlaus sagði...

Vá, skemmtilegt blogg og greinilega snilldar ferð. :)
Auður