sunnudagur, 16. ágúst 2009

Síðustu dagarnir í Fukuoka


Frá því að við komum frá Suður Kóreu höfum við verið duglegar að klára ýmislegt á to do listanum okkar og gert síðasta hitt og síðasta þetta.

Við skelltum okkur í frábært onsen (náttúrulaug) rétt fyrir utan borgina þar sem við söfnuðum orku fyrir heimferðina. Greinilega vinsælt onsen þar sem nóg var um berrassaðar japanskar konur sem höfðu örugglega mjög gaman af þessum vestrænu stelpum sem vissu ekkert hvernig onsen venjurnar eru. Þar sem við erum óvanar að spóka okkur um úti undir berum himni baðfatalausar var þetta örugglega enn meiri skemmtun fyrir japönsku konurnar sem virtust ekki hafa gert annað allt sitt líf. Þetta varð þó fljótt ósköp eðlilegt og vorum við næstum því farnar út úr onseninu á evuklæðunum. Díííjóóók.

Annars er eitthvað um onsen fyrir bæði kynin sem eru alveg jafn vinsæl.... nei hættiði nú alveg!

Í gærkvöldi var kveðjustund með bekknum. Við fórum út að borða og svo auðvitað í karaoke. Þessar 3 klukkustundir í karaoke voru án efa þær bestu hingað til. Spilaði margt inní, m.a. að Connie bekkjarsystir okkar er án efa einn hressasti karaokesöngvari sem hægt er að finna og maðurinn hennar er án efa einn hryllilegasti karaokesöngvari sem hægt er að finna. Saman var þetta ógleymanleg blanda.


Karaoke-Connie er lengst til hægri

Rappararnir

Annars þá eignuðust við japanskan aðdáanda fyrir stuttu. Sá er 17 ára hormónabomba sem er rosalega skotinn í okkur. Við vitum ekkert hvaðan hann kemur en hann birtist bara þegar við liggjum í sólbaði fyrir aftan blokkina okkar. Miður sín yfir því að við værum að fara heim bað hann í einhverri örvæntingu um að fá að snerta okkur. "Soft touch?" Þetta var það eina sem hann kunni í ensku. Annaðhvort þora Japanirnir ekki að tala við okkur eða biðja um að fá að snerta okkur. Það er greinilega annaðhvort eða!


Á morgun þurfum við svo að koma öllu hafurtaskinu okkar í töskurnar og vona að þær hafi breyst í Mary Poppins töskur.

Nú ætlum við að fara að gera okkur til fyrir SÍÐASTA skiptið okkar á uppáhalds veitingastaðnum í miðbænum.

Fukuoka kveðjur,
Janhvít

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahahah "soft touch" - algjr snilld !

ég hlakka til að fá ykkur heim !!

kv.Laufey